Flýtilyklar
Þjónustustöðvar
Þjónustustöðin í Fiskislóð er opin kl. 8-19 virka daga og kl. 10-18 um helgar.
Stöðin er 55 metra löng og getur þvegið 800-900 bíla á dag, þannig að aldrei er löng bið eftir þvotti.
- Þú situr í bílnum á meðan hann er þrifin
- Starfsmenn taka á móti þér og sprauta tjöruleysir á bílinn yfir vetrartímann og á sumrin er sprautað annað efni(sumartjöruleysir).
- Síðan tekur við fullkominn háþrýstiþvottabúnaður sem skolar af mestu óhreinindin.
- Þá taka við mjúkir svampburstar með miklu sápulöðri og hreinsa burt það sem eftir er af óhreinindum.
- Í lokin taka við öflugir blásarar sem leggja loka hönd á verkið og skila út úr stöðinni hreinum og þurrum bíl.
Þjónustustöðin í Bæjarlind er opin kl. 8-19 virka daga og kl. 10-18 um helgar.
Stöðin þvær 40-60 bíla á klst., þannig að aldrei er löng bið eftir þvotti. Við veitum viðskiptavinum okkar skjóta og góða þjónustu.
Í þjónustustöðinni í Bæjarlind getum við þvegið flestar stærðir bíla.
Hámarkshæð er 2,30 m. og hámarks dekkjastærð er 35" x 12,5 "
Þvottastöðin í Mosfellsbæ er mannlaus og stöðin því opin allan sólarhringinn.
Þvottastöðin í Hafnarfirði er mannlaus og opin allan sólahringinn.
Póstlistar
Fréttir
-
Hraðþrif
28.07.2010 - Lestrar 255Ný þjónusta HRAÐÞRIF eftir þvott - 10 mín. Hraðþrifþjónustan er staðsett í Bæjarlind 2 Kópavogi
-
Ný þvottastöð-Skúlagötu
8.03.2010 - Lestrar 1372Höfum opnað nýja snertilausa þvottastöð hjá Olís Skúlagötu.
-
Háholt-Mosfellsbær
13.10.2009 - Lestrar 2230Höfum opnað snertilausa þvottastöð í Háholti-Mosfellsbæ.
Íslenska
English