Skilmálar:
- Skrifstofa Löðurs sér um útgáfu viðskiptakortsins.
- Viðskiptakortið kostar ekkert og er eign Löðurs.
- Löður hefur rétt til að leita allra upplýsinga sem nauðsynlegt þykir til að afgreiða umsóknina og hafna henni án frekari skýringa.
- Viðskiptakortið er hægt að nota á öllum starfsstöðvum Löðurs.
- Kortið er skráð á fyrirtækið sem sækir um.
- Umsækjandi getur haft nokkur kort og fylgst með hverju númeri fyrir sig.
- Ef kort glatast ber korthafa að tilkynna það í síma 898-0093 eða á sala@lodur.is, svo kortið verði gert óvirkt. Einnig ef kort er gallað.
- Reikningstímabil viðskiptakortsins er einn almanaksmánuður.
- Löður sendir mánaðarlega reikning ásamt yfirliti og skuldbindur korthafi sig til að greiða eigi síðar en á eindaga.
- Ef korthafi hefur athugasemd við mánaðaryfirlitið skal hann tilkynna það á sala@lodur.is eða í síma 898-0093 sem fyrst.
- Löður hefur heimild til að loka kortinu ef um vanskil er að ræða.
- Löður hefur heimild til að innheimta sérstakt vanskilagjald.
- Löður hefur heimild til að breyta ákvæðum skilmála og verður korthafa tilkynnt um það skriflega.
- Korthafi sem sættir sig ekki við breytingar á skilmálum hefur rétt til að slíta viðskiptum við Löður og lætur þá vita á sala@lodur.is eða í síma 898-0093.
- Ef korthafi vill slíta viðskiptum og/eða loka korti, skal hann tilkynna það skriflega á skrifstofu Löðurs.
- Korthafa er skylt að tilkynna aðsetursskipti svo reikningar skili sér á rétt heimilisfang.
- Korthafi er ábyrgur fyrir úttektum á kortinu og skuldbindur sig til að greiða þær úttektir sem koma fram á nótum.
- Með undirskrift samþykkir korthafi og skuldbindur sig til að fara eftir skilmálum þessum.
