Hafa samband

Orkuboltarnir í þjónustuverinu leggja sig fram við að svara erindum eins fljótt og hægt er.Við viljum heyra frá þér!

Sendu okkur fyrirspurn

Vinsamlegast fyllið út alla reiti sem eru merktir nauðsynlegir.

Takk fyrir
Skilaboðin þín hafa verið send.
Við höfum samband innan 24-48 klst.
Æææ! Eitthvað klikkaði.

Spurt & svarað

Hér finnur þú svör við algengustu
spurningunum sem við fáum

Á hvaða stöðvum er áskrift virk?

Áskriftarkerfi Löðurs býður upp á tvær leiðir sem eru Snertilaus (Bæjarlind, Einhella, Faxastígur, Fellsmúli, Hagasmári, Skúlagata, Grímseyjargata og Vesturlandsvegur) og hinsvegar Snertilaus og svampbursta (Bæjarlind, Einhella, Dalvegur, Faxastígur, Fitjar, Hagasmári, Skúlagata, Vesturlandsvegur og Lambhagi).

Á hvaða stöðvum er Keyrt og kvitt virkt?

Keyrt og kvitt er virkt á öllum stöðvum að undanskilinni XL stöðinni á Einhellu.
Ath. Keyrt og kvitt er virkt á snertilausu stöðinni á Einhellu.

Hvað kostar að vera í áskrift

Mánaðarleg áskrift með aðgang að átta snertilausum stöðvum kostar 6.900kr. en mánaðarleg áskrift með aðgang að átta snertilausum stöðvum og fjórum svampburstastöðvum kostar 9.900kr.

Hvað kostar að vera í Keyrt og kvitt?

Það kostar ekkert að vera skráð/ur í Keyrt og kvitt hjá Löðri í gegnum Parka appið. Viðskiptavinir eru aðeins rukkaðir fyrir þau skipti sem þvottaþjónusta er nýtt.