Bónaðu bílinn reglulega! Það verndar hann ekki aðeins gegn óhreinindum, heldur líka gegn áhrifum vegsalts sem hefur tærandi áhrif á lakkið og flýtir fyrir ryðmyndun.
Notaðu snjófroðu á lakkið! Snjófroða er sérstök gerð af sápu sem hentar einstaklega vel til að fjarlægja uppsöfnuð óhreinindi og vegsalt af bílnum eftir vetrartímann. Þú berð bara froðuna á lakkið og leyfir að standa í nokkrar mínútur, og skolar svo af.
Fjárfestu í háþrýstidælu! Besta leiðin til að þrífa bílinn reglulega yfir vetrartímann er með góðri háþrýstidælu. Það tekur ekki nema örfáar mínútur að þrífa mestu óhreinindin. Þú þarft samt að athuga fyrst hvort að lakkið á bílnum þoli háþrýstingsþvott, því annars getur salt komist í gegn um málninguna og valdið tæringu.
Þurrkaðu bílinn strax eftir þrif! Í miklum kulda geta hurðir og rúður frosið þannig þú getir ekki opnað þær, ef þú passar ekki upp á að þurrka strax eftir þrif.
Akið varlega! Á veturna er enn meiri ástæða til að flýta sér hægt og aka varlega heldur en á sumrin. Ekki bara öryggisins vegna, ef það skyldi vera hálka á vegum, heldur dregur það líka úr saltögnum sem kastast upp frá hjólbörðunum og geta skaddað lakkið. Með því að halda öruggri fjarlægð milli þín og bílanna fyrir framan þig kemurðu svo í veg fyrir að óhreinindi, möl og salt kastist frá þeirra dekkjum yfir á þinn eigin bíl.