Mottuþrif hjá Löður til styrktar Mottumars
Löður er stoltur styrktaraðili Mottumars 2022 👨🏻
Allan mánuðinn mun andvirði allra mottuþrifa á þvottastöð Löðurs á Fiskislóð 29 mun renna óskert til Krabbameinsfélagsins í marsmánuði. Mottuþrifin kosta 1.000 krónur og því einfalt að leggja málefninu lið á meðan maður hreinsar slabbið úr bílamottunum í leiðinni.
Löður er einnig viðurkenndur söluaðili fyrir Mottumarssokkana og hægt er að kaupa sokkana á Fiskislóð fyrir 2.000 krónur. Mottumarssokkarnir eru hannaðir af Farmers Market og kaup á þeim er frábær leið til að styrkja baráttu Krabbameinsfélagsins.
Föstudaginn 11. mars er síðan sjálfur Mottudagurinn og er mikilvægt að taka daginn frá fyrir bílaþvott þar sem Löður mun gefa 15% af allri sölu dagsins til málefnisins, óháð staðsetningu þvottastöðvar.
Starfsmenn og aðrir mottuhafar hjá Löður eru nú þegar byrjaðir að safna í yfirvaraskegg til að taka þátt í Mottukeppninni. Hægt er að fara á styrktarsíðu Löðurs og heita á starfsfólkið okkar
hér.
Við hlökkum til að taka þátt í þessu verðuga málefni og erum spennt að sjá allar motturnar á Fiskislóð 29.




